BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261021T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261021T170000
DTSTAMP:20261021T150007Z
CREATED:20261021T150007Z
LAST-MODIFIED:20261021T150007Z
UID:10001362-1792569600-1792602000@hannesarholt.is
SUMMARY:Grænland  með Arndísi Höllu og Emili Þór Sigurðarsyni
DESCRIPTION:Grænland – ís\, sögur og ýmislegt óútskýranlegt Grænland er meira en ís og kuldi. Þar búa sögur\, sterk menning\, stórbrotin náttúra og þjóðtrú þar sem hið sýnilega og ósýnilega eiga það til að rekast á. Á sýningunni skyggnumst við inn í ólíkar hliðar landsins – mannlífið\, menninguna\, náttúruna og verurnar sem kannski eru bara þjóðsögur. Komdu norður. Ísinn er kaldur. Sögurnar eru það ekki. \nVelkomin til Grænlands. \nKlæddu þig vel – og hafðu augun opin. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/graenland-med-arndisi-hollu-og-emili-thor-sigurdarsyni/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Fyrirlestur,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/greenland_1920x12003.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261021T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261021T150000
DTSTAMP:20261013T143407Z
CREATED:20261013T143407Z
LAST-MODIFIED:20261013T143407Z
UID:10001355-1792591200-1792594800@hannesarholt.is
SUMMARY:Maður er manns gaman - Gjörnýtingarsinni segir frá
DESCRIPTION:Bergljót Gunnarsdóttir listakona – öðru nafni Beggó – mætir í veitingastofur Hannesarholts kl.14 miðvikudaginn 21.október og sýnir okkur ýmislegt sem hún hefur gert úr tilfallandi dóti sem annars hefði verið hent. Beggó kallar sig „gjörnýtingarsinna“ og hefur gert upp tíu dúkkuhús\, flest úr Góða hirðinum og gefið þeim nýtt líf\, langömmubörnum hennar til ómældrar ánægju.\nVerið öll velkomin í spjall og gleði yfir því sem birst getur úr gömlu rusli. Kaffihúsið opið fyrir þá sem vilja. Enginn aðgangseyrir.\nNýlega birtist viðtal við Bergljótu í Kastljósi þegar hún gaf Kvennaathvarfinu dúkkuhús sem hún hún hafði gert upp á þennan máta til minningar um vinkonu sína Elísabetur Gunnarsdóttur.\nUmfjöllun Rúv
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/madur-er-manns-gaman-gjornytingarsinni-segir-fra/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/gjornytingarsinni.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261021T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261021T210000
DTSTAMP:20260927T152002Z
CREATED:20260910T160451Z
LAST-MODIFIED:20260927T152002Z
UID:10001334-1792612800-1792616400@hannesarholt.is
SUMMARY:Julius Windish og Freysteinn Gíslason - tónleikar
DESCRIPTION:Píanóleikarinn og tónskáldið Julius Windisch er einn af áhugaverðustu röddum evrópskrar djasssenunnar. Tónlist hans einkennist af leit að nýjum hljóðheimum\, fíngerðum blæbrigðum og persónulegri tjáningu þar sem spuninn og samspilið eru í forgrunni. Verk hans sameina næmni\, hugmyndaauðgi og sterka listræna sýn.\n\nÁ þessum tónleikum leiða Julius Windisch og Freysteinn Gíslason saman krafta sína og flytja bæði frumsamda tónlist eftir Julius og Freystein. Tónlist þeirra á rætur í djassi\, spunatónlist og samtímatónlist\, þar sem rík áhersla er lögð á samspil\, litríkan hljóðheim og opið samtal tónlistarmannanna.\n\nMeð þeim á sviði verður einn af fremstu djasstrommuleikurum Íslands\, Matthías Hemstock. Með reynslu sinni\, sköpunargleði og næmu samspili mynda þeir öflugt tríó sem gefur tónlistinni aukið rými og kraft.\n\nÁhorfendum býðst einstakt tækifæri til að heyra nýja tónlist eftir tvo skapandi tónlistarmenn sem hafa markað sér sérstöðu á evrópskri djasssenu\, flutta af kvartett sem leggur áherslu á lifandi samskipti\, spunann og sameiginlega sköpun í augnablikinu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/julius-windish-og-freysteinn-gislason-tonleikar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/09/800051326_1715176667281994_6998695745901968409_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261022T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261022T213000
DTSTAMP:20260902T140543Z
CREATED:20260902T140543Z
LAST-MODIFIED:20260902T140543Z
UID:10001332-1792699200-1792704600@hannesarholt.is
SUMMARY:Dúó Sandur á tónleikum í Hannesarholti 22. október 2026
DESCRIPTION:Á þessum tónleikum kemur fram Dúó Sandur. Dúo Sand skipa frændsystkynin Einar Bjartur Egilsson píanóleikari og sópransöngkonan Gerður Bolladóttir. Á undanförnum árum hafa þau komið fram víðsvegar um landið og flutt fjölbreytta tónlist en þó aðallega eigin tónsmíðar. \nEinar og Gerður eiga bæði ættir að rekja til Sands í Aðaldal og munu að því tilefni flytja nær eingöngu frumsamin lög við ljóð forfeðra sinna\, ljóðskáldanna frá Sandi í Aðaldal. Ljóðskáldin sem um ræðir eru systkinin Þórunn Friðjónsdóttir\, Sigurjón Friðjónsson og Guðmundur Friðjónsson og síðan Heiðrekur Guðmundsson\, Bolli Gústavsson og Gerður Bolladóttir. Þess má geta að Guðmundur Friðjónsson var langafi Einars Bjarts og Þórunn Friðjónsdóttir langamma Gerðar. Inn á milli laganna flytur Einar Bjartur svo eigin ljóðræn píanóverk sem fléttast fallega saman við sönglögin. \nFlest ljóðanna fjalla um árstíðirnar – Bjartar sumarnætur\, kvíða fyrir vetrinum og þrá eftir vori og sumri sem einkenndi oft ljóð frá þessum tíma. \nUm flytjendur: \nGerður Bolladóttir \nGerður Bolladóttir sópran söngkona og tónskáld\, hóf formlegt söngnám 18 ára gömul við Tónlistarskólann á Akureyri. Hún lauk burtfararprófi í söng undir handleiðslu Sigurðar Demetz Franzsonar og stundaði framhaldsnám við Indiana University\, School of Music í Bloomington í Bandaríkjunum\, þar sem helstu kennarar hennar voru Martina Arroyo og Klara Barlow. Gerður hefur haldið tónleika víðsvegar á Íslandi\, Bandaríkjunum\, Grænlandi\, Færeyjum og Pétursborg. \nGerður hefur verið mjög virk í kammertónlist í gegnum árin og stofnaði Tríó Ljóm stuttu eftir að hún kom heim úr námi árið 2000. Fyrir 12 árum síðan byrjaði Gerður að semja sönglög sem enduðu í efnisskrá sem hún flutti í Listasafni Íslands árið 2017\, og tónleikum í Pétursborg árið 2019. Árið 2004 kom út diskurinn Jón Arason in memoriam með Gerði og Kára Þormar orgelleikara. Sömuleiðis gaf hún út geisladisk með íslenskum þjóðlögum í útsetningum Ferdinand Rauter og Önnu Þorvaldsdóttur árið 2006. Síðustu verkefni Gerðar voru hlutverk í óperu um Vigdísi Finnbogadóttur eftir Alexöndru Chernyshovu árið 2021\, tónleikar með lögum Sigfúsar Halldórssonar vorið 2023 og svo tónleikar víðsvegar um land með eigin sönglögum undanfarin ár ásamt Einari Bjarti. \nEinar Bjartur Egilsson \nEinar Bjartur Egilsson hóf píanónám 7 ára í Tónlistarskólanum í Reykjahlíð við Mývatn. Síðar fluttist hann til Reykjavíkur og stundaði nám í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Listaháskóla Íslands. Hann útskrifaðist þaðan vorið 2013 og lék meðal annars einleik í píanókonsert F. Poulencs með Sinfóníuhljómsveit Íslands það ár. \nFrá 2013 – 2015 stundaði hann meistaranám í Konservatoríinu í Maastricht\, Hollandi og í desember 2014 hlaut hann styrk úr Minningarsjóði um Birgi Einarsson. Einar hefur samið tónlist fyrir nokkrar stuttmyndir en síðla árs 2015 gaf hann út hljómplötuna Heimkoma\, sína fyrstu plötu með eigin tónsmíðum. Hann hefur spilað á tónlistarhátíðum í Hollandi og á Íslandi og starfað með ýmsum kórum bæði þar og hér heima. \nNúverið starfar Einar aðallega sem meðleikari með ýmsum tónlistarmönnum\, nemendum og kórum. Hann heldur tónleika reglulega ásamt því að spila einleiksverk annað slagið. Undanfarin ár hefur hann gefið út tvær hljómplötur með píanóverkum eftir svissneska tónskáldið Frank Baumann og gaf einnig út breiðskífuna Kyrrð með eigin verkum sumarið 2022. Nýlega hélt hann tvenna einleikstónleika á Íslandi og hefur einnig spilað í ýmsum leiksýningum\, meðal annars í Þjóðleikhúskjallaranum. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-sandur-a-tonleikum-i-hannesarholti-22-oktober-2026/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/09/1920x1080einaroggerdur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261024T113000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261024T123000
DTSTAMP:20261013T153740Z
CREATED:20261007T115405Z
LAST-MODIFIED:20261013T153740Z
UID:10001351-1792841400-1792845000@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókvit - Benedikt Bókaútgáfa
DESCRIPTION:Velkomin á BÓKVIT í Hannesarholti laugardaginn 24.október 2026\, þar sem höfundar segja frá bókum sínum\, lesa uppúr þeim og selja þær jafnvel. Þessir rithöfundar kynna eftirtaldar bækur: \nBrynja Hjálmsdóttir – Undir fögru skinni\nMargrét Bjarnadóttir – Varkár\nKarólína Rós Ólafsdóttir – Lífskán\nMarta María – Fuglamál\nMaría Elísabet Bragadóttir – Þúsund barna móðir \nGengið inn frá Hljóðbergi. Aðgengi fyrir fatlaða. Ókeypis inn.\nVeitingahúsið á efri hæðinni opið að viðburði loknum.\nHannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur\, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/16370/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókakaffi,Bókakynning,Bókaspjall,Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/Bokvit24-10-2026.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261024T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261024T170000
DTSTAMP:20260929T113750Z
CREATED:20260929T113217Z
LAST-MODIFIED:20260929T113750Z
UID:10001346-1792857600-1792861200@hannesarholt.is
SUMMARY:VÍSUR  SVANTES
DESCRIPTION:VÍSUR SVANTES \nÍ fyrsta sinn á íslensku hið rómaða verk danska meistarans Benny Andersen. \nSaga í söngvum þar sem tónlist og texti spila saman með eintökum hætti. \nAðalsteinn Ásberg Sigurðsson íslenskaði og flytur verkið\, en með honum koma fram Gunnar Gunnarsson á píanó og Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa. \nVísur Svantes kom fyrst út í Danmörku fyrir meira en hálfri öld\, bæði í bókaformi og á metsöluplötu með höfundi verksins og söngvarandum Povl Dissing. Það er nú talið þjóðargersemi og er á lista yfir einstök verk í danskri tónlistarsögu. \nVerkið fjallar um næstum óþekkt og hugsanlega látið ljóðskáld að nafni Svante Svendsen sem bað höfundinn um að semja tónlist við ljóðin sín. Með gamansömum og sérstæðum er sagt frá skáldinu óhamingjusama sem kynnti sig gjarnan þannig: Svante Svendsen\, fæddur Svensson\, varð viðskila við skánska foreldra mína á Malmö-ferjunni í ágúst 1935 og hef síðan orðið að sjá um mig sjálfur með aðstoð annarra.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/svantes/2026-10-24/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/09/Event_22406.webp
END:VEVENT
END:VCALENDAR