BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261107T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261125T160000
DTSTAMP:20261111T160950Z
CREATED:20261029T163037Z
LAST-MODIFIED:20261111T160950Z
UID:10001369-1794060000-1795622400@hannesarholt.is
SUMMARY:Tilbrigði - Myndlistarsýning Guðrúnar Önnu Matthíasdóttur
DESCRIPTION:Sýning Hannesarholti 7. – 25.nóvember 2026 : Tilbrigði \nAlls staðar í kringum okkur er vatn\, í mismunandi formi. Við tökum það sem sjálfsagðan hlut og gleymum stundum að gefa því gaum hversu falleg eru tilbrigði vatnsins. \nGuðrúnu hefur alltaf fundist síbreytileiki vatnsins spennandi viðfangsefni í ljósmyndun og hefur tekið óteljandi myndir af því í gegnum tíðina. Til að mynda af daggardropum\, ískristöllum og ölduslettum við sjávarborðið. Yfirleitt kýs hún að notast við macro- og aðdráttarlinsur til þess að fá meiri nálægð og aðra sýn. \nUndanfarin ár hefur hún einbeitt sér að formunum og litunum sem umbreytast á vatnsfletinum. Með því að nálgast yfirborðið birtist breytt mynd og speglunin í vatninu tekur á sig sjálfstæða og abstrakt mynd. Markmiðið er að koma áhorfandanum á óvart og afhjúpa form og liti sem oft fara framhjá okkur en birtast hverjum og einum á ólíkan hátt. \nGuðrún tók grunnnám í myndlist á sínum tíma en valdi sér svo önnur svið sem veittu henni tækifæri til að ferðast og búa um árabil erlendis. Hún segir kynni hennar af ólíkum menningarheimum og framandi landslagi hafi verið mjög auðgandi og örvandi fyrir sköpun sem hefur alltaf verið hluti af lífi hennar og að myndavélin fylgi henni hvert sem hún fer. Guðrún leggur stund á ýmsa sköpun\, s.s. ljósmyndun\, málun og skriftir. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði í Frakklandi og hér á Íslandi og gefið út tvær barnabækur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tilbrigdi-myndlistarsyning-gudrunarn-onnu-matthiasdottur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/gudrun-anna-matthiasdottir-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261118T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261118T150000
DTSTAMP:20261014T161841Z
CREATED:20261014T161841Z
LAST-MODIFIED:20261014T161841Z
UID:10001359-1795010400-1795014000@hannesarholt.is
SUMMARY:Maður er manns gaman - Þórdís Klara býður í spjall
DESCRIPTION:Þórdís Klara býður í spjall í veitingastofum Hannesarholts miðvikudaginn 18.nóvember kl.14. Þórdís er ljósmóðir og ljóðskáld. Hún byrjaði ung að yrkja ljóð og hefur með auknum frítíma gefið skáldagyðjunni enn frekar undir fótinn. Hún hefur m.a. verið virk í fjölbreyttu starfi KFUK og í kyrrðarstarfi fyrir konur.\nÞórdís deilir með gestum ljóðum sínum og lífsspeki – en mest býður hún uppá huggulega samveru og kaffispjall. Kaffihúsið opið fyrir þá sem vilja njóta veitinga. Frítt inn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/madur-er-manns-gaman-thordis-klara-bydur-i-spjall/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Samverustund
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/THordis-klara-Madur-er-manns-gaman.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261119T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261119T213000
DTSTAMP:20260622T102651Z
CREATED:20260622T102651Z
LAST-MODIFIED:20260622T102651Z
UID:10001314-1795118400-1795123800@hannesarholt.is
SUMMARY:Neyrópa / Eyrópa : Kvernig skal kópa?
DESCRIPTION:Tekist verður á við útkomu ágústþjóðaratkvæðagreiðslu um haf aðildarviðræðna. Leikin fantasía um tímamóta innlegg Zbigniew Preisners um hlutverk þjóðar í Evrópu: A song for the Unification of Europe og Van Den Budenmayer Funeral Music.\nÁsamt öðrum verkum úr fórum gímaldins\nValur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur kynnir og leggur út af efninu.\nFrekara lesefni:\nhttps://gimaldin.org/?page_id=109\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/neyropa-eyropa-kvernig-skal-kopa/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/06/Eyropa1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261121T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261121T213000
DTSTAMP:20260923T001808Z
CREATED:20260923T001624Z
LAST-MODIFIED:20260923T001808Z
UID:10001343-1795291200-1795296600@hannesarholt.is
SUMMARY:Bardukha snýr aftur - tónlistin sem á sér mörg heimili
DESCRIPTION:Balzamer-sveitin Bardukha er komin aftur.\nEftir 18 ára hlé hefur hljómsveitin snúið aftur á svið og tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið. Bardukha var mjög virk á árunum 2002–2008 og gaf árið 2006 út geisladiskinn The Concept of Balzamer Music – verk sem gaf nafni og hugmynd hljómsveitarinnar sérstakt listrænt form.\nBardukha hefur aldrei haft áhuga á því að láta tónlistina standa kyrrstæða. Hljómsveitin sækir áhrif víða að\, í ólíkar menningarhefðir\, tónlistararf og strauma sem hafa ferðast milli landa og kynslóða. Þessum áhrifum er síðan teflt saman\, þau umbreytt og þeim gefið nýtt samhengi.\nÞessa nálgun kallar Bardukha “Balzamer-tónlist”.\nBalzamer-tónlist er ekki tónlistarstefna í hefðbundnum skilningi. Hún er frekar hugmynd um tónlist sem getur farið yfir landamæri – landfræðileg\, menningarleg og jafnvel tímaleg. Hún leyfir ólíkum áhrifum að mætast án þess að þurfa að skilgreina þau eða setja í fastar skúffur. Úr þessum árekstrum og samskiptum verður til tónheimur sem er í senn kunnuglegur og framandi.\nThe Concept of Balzamer Music var gefinn út árið 2006 og varð þannig eins konar hljóðrituð yfirlýsing um þessa sýn. Nú\, tveimur áratugum síðar\, er hugmyndin tekin upp að nýju.\nÍ júlí 2026 kom Bardukha saman á ný eftir 18 ára hlé. Endurkoman er ekki einfaldlega ferð aftur í tímann heldur nýr kafli. Hljómsveitin kemur aftur með sameiginlega sögu\, reynslu og tónlistar minni – en líka með tækifæri til að sjá gamla hugmynd með nýjum augum.\nÁ tónleikum Bardukha verður því ekki aðeins horft aftur heldur líka fram á við. Tónlistin fær að hreyfast\, blandast og þróast í rauntíma og áhorfendum er boðið inn í hljóðheim sem á sér ekki eitt upprunaland eða eitt heimili.\nBardukha tekur sér óskorað frelsi til að fara sínar eigin leiðir og leikur tónlist sem á sér mörg heimili – en ekkert eitt ákveðið.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bardukha-snyr-aftur-tonlistin-sem-a-ser-morg-heimili-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/09/Event_22269.webp
END:VEVENT
END:VCALENDAR