BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20260101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270213T203000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20270213T213000
DTSTAMP:20261007T112332Z
CREATED:20260922T234136Z
LAST-MODIFIED:20261007T112332Z
UID:10001341-1802550600-1802554200@hannesarholt.is
SUMMARY: Hljómsveitin Move Óskar Guðjónsson  
DESCRIPTION:Á tónleikunum kemur fram hljómsveit saxófónleikarans Óskar Guðjónssonar\, Move þar sem Óskar vildi takast á við sígildasta form jazztónlistar\, lúður með píanótríói. Hann stofnaði því kvartettinn MOVE með Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara\, Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni kontrabassaleikara og Matthíasi M.D. Hemstock trommuleikara. Þeir hafa æft vikulega frá árinu 2017 og leita leiða til að nálgast eigið efni með eigin aðferðum og allri þeirri fjölbreytni sem þeir finna upp á. Fjórmenningarnir eru þekktir í íslensku tónlistarlífi og hafa allir skapað sér sérstöðu með persónulegri nálgun á fjölbreyttustu viðfangsefni. Ekki skortir þar áskoranir\, meðal annars þá hvort þeirra aðferðir við tónsmíðar og samleik sé lituð af því sem má eða má alls ekki. Hvort réttar skoðanir\, samkvæmt þeim reglum og siðvenjum sem gilda til dæmis um íslenska tungu\, hafi áhrif á sköpun og túlkun tónlistar. Þeir vilja brjótast úr höftum slíkrar rétthugsunar í tónsmíðum og túlkun\, leika lausum hala. \nFrá unglingsárum hefur Óskar Guðjónsson verið eftirsóttur saxófónleikari í íslensku tónlistarstórfjölskyldunni. Spunatónlist\, jazz (djass)\, stendur hjarta hans næst. Á þeim vettvangi hefur hljómsveitin ADHD vakið verðskuldaða athygli innan og utan landsteina\, tónleikaferðir um Evrópu norðanverða skipa stóran sess í lífi hljómsveitarmeðlima. Þeir eru\, auk Óskars\, bróðir hans Ómar gítarleikari\, Magnús Tryggvason Elíasson trommuleikari og Tómas Jónsson hljómborðsleikari. Samstarfs Óskars og Skúla Sverrissonar\, tónskálds og bassaleikara\, hefur einnig verið gæfuríkt og galopnað augu og eyru Óskars fyrir fleiri möguleikum jazztónlistar. Afraksturinn er tvær plötur og ótal tónleikar
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hljomsveitin-move-oskar-gudjonsson/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/09/Event_22393.webp
END:VEVENT
END:VCALENDAR