
Bríet, blómin og Hannes
27. september @ 13:00 - 14:00
Dagskráin „Bríet, blómin og Hannes“ var flutt í Hannesarholti – Hljóðbergi 27. september, 2025 til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar, og verður nú endurtekið í september 2026.. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.
En hvaða blóm eru þetta ? – Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 27. september.
En hvaða blóm eru þetta ? – Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 27. september.
Sýningin er samvinnuverkefni Leikhúslistakvenna 50 + og Hannesarholts.
Dagskráin er um eina klst.
Dagskráin er um eina klst.
Þáttakendur
Ásdís Skúladóttir leikstjóri, skrifaði handritið ásamt hópnum
Edda Þórarinsdóttir leikkona
Helga E. Jónsdóttir leikkona
Þórey Sigþórsdóttir leikkona
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari
Ásdís Skúladóttir leikstjóri, skrifaði handritið ásamt hópnum
Edda Þórarinsdóttir leikkona
Helga E. Jónsdóttir leikkona
Þórey Sigþórsdóttir leikkona
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari
