Hleð Viðburðir

Eldmóðir – Lokatónleikar vetrarins með Cauda Collective í Hannesarholti

Cauda Collective lýkur tónleikaröð sinni Eldblik í Hannesarholti með kraftmikilli tónlistarupplifun undir heitinu Eldmóðir föstudaginn 16 maí kl. 20:00.

Á efnisskránni eru fjögur áhrifamikil verk sem öll fjalla um móðurhlutverkið í ýmsum myndum. Verk tónleikanna fjalla um missi og átök, söknuð, ást og nærveru – allt frá nýfæddu barni á móðurbrjósti, til þunguðu konunnar sem stendur frammi fyrir sársaukafullum sannleika.

Efnisskrá kvöldsins:

  • Sóley Stefánsdóttir: Parasite – fyrir sópran og víólu
  • Sveinn Lúðvík Björnsson: …og í augunum blik minninganna – strengjakvartett samin í minningu Margrétar Halldóru Hallgrímsdóttur móður höfundar
  • Þuríður Jónsdóttir: INNI – hljóðheimur mótaður af upptökum af nýbura að næra sig 
  • Arnold Schönberg: Verklärte Nacht – dramatískur strengjasextett eftir ljóð um ást, sekt og fyrirgefningu

Eldmóðir er óður til móðurinnar – til þeirra tengsla sem krefjast bæði hugrekkis og hlýju. Hjartanlega velkomin í Hannesarholt.

Upplýsingar

Dagsetn:
16. maí
Tími:
20:15 - 22:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map