This event has passed.

Opnun: HVALALÍF – Sóley Dröfn Davíðsdóttir
17. október @ 14:00 - 16:00
Hvalalíf
Sóley Dröfn Davíðsdóttir heldur sýninguna Hvalalíf í Hannesarholti frá 14. október til 4. nóvember.
Í verkunum birtast blíðir risar hafdjúpanna sem tjá sig með söng og annast afkvæmi sín af alúð. Þeir eru táknmynd frelsis og krafts, en jafnframt hlýju og visku, dulvitundar og kyrrðar í iðrum hafsins. Marglaga myndir eins og sálarlífið sjálft; vefnaður í olíu þar sem blæbrigði og þversagnir renna saman í eitt.
Sóley hefur haldið fimm einkasýningar hérlendis og eina í Kína, auk þess að taka þátt í samsýningu í Þýskalandi.
Sóley hefur haldið fimm einkasýningar hérlendis og eina í Kína, auk þess að taka þátt í samsýningu í Þýskalandi.
Sýningin er sölusýning og er opin á opnunartímum Hannesarholts, miðvikudaga-laugardaga kl.11.30 – 16.00.

