2026-11-10T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir
Syngjum saman í Hannesaarholti með Hörpu Þorvalds. Streymt verður frá söngstundinni.
Harpa er verkefnastjóri list- og menningartengdra verkefna á Skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar og stýrir þar á meðal verkefninu Syngjandi skóli og stendur fyrir árlegum samsöng í öllum leik- og grunnskólum landsins á Degi íslenskrar tónlistar. Áður starfaði hún sem tónmenntakennari og kórstjóri við Laugarnesskóla í Reykjavík. Auk þess hefur Harpa stjórnað vikulegum söngstundum á Hrafnistu frá árinu 2018, haldið utan um viðburðinn Syngjum saman í Hannesarholti á árum áður og er sjálfstætt starfandi tónlistarkona og meðlimur í hljómsveitinni Brek.
Textar á tjaldi svo allir geti sungið með.
Allar kynslóðir velkomnar. Frítt inn.
Syngjum saman er í boði Hollvinafélags Hannesarholts.

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top