„Lífvænlegt land“

„Því takmarkið sem vjer verðum að keppa að, það er í orði að gera landið sem lífvænlegast með því að hlúa að öllu, sem gerir fýsilegra að vera hér,“ sagði Hannes Hafstein í ræðu sinni þegar hann tók við embætti Íslandsráðherra. Hannes skorti ekki skapandi hugsjón, frumkvæði né hæfileika til að ryðja nýjar framkvæmdabrautir. Það er ekki að furða að fólksflutningar til vesturheims snögg minnkuðu þegar heimastjórnin tók við, en á sama tíma jukust fólksflutningar frá Evrópu.

Jafnrétti kynjanna

Eitt af fyrstu verkum Hannesar var að tryggja stúlkum rétt á skólagöngu í Lærða Skólalann, nokkrum áður síðar tryggði hann konum sama rétt og karlar til náms, námsstyrkja og embættisstarfa. Þegar Alþingi rýmkaði um kröfurnar um kosningarétt svo þurrabúðarmenn og kaupstaðaborgarar fengu kosningarétt, stendur í áliti Hannesar „að vísu er kosningarjetturinn ekki í sannleika almennur, nema konur hafi hann jafnt og karlar.“ Það er augljóst að kvennréttindi voru honum hugleikin, en konur 40 ára og eldri fengu kosningarétt 1915, og svo fullgild pólitísk rétttindi 1920.

Menntun fyrir öll

Menntamál voru Hannesi mikilvæg enda vissi hann að sjálfstæði þjóðarinnar myndi byggjast á háu menntunarstigi almennings. Hann tryggði konum aðgang að menntun, en Hannes mætli einnig fyrir stofnun Kennaraskóla Íslands 1907, 1907 fengu öll börn fjögurra ára ókeypis skólagöngu, 1909 var stofnaður styrktarsjóður handa barnakennurum, og 1911 lagði fram Hannes frumvarp sem leiddi til stofnunar Háskóla Íslands. Á heimastjórnartímabilinu voru einnig stofnaðir menntaskólar, bændaskólar, sjómannaskóli, iðnskólar, húsmæðraskólar og ungmennafélög.

Nýsköpun og uppbygging

Innviði tóku stakkaskiptum á heimastjórnartímabilinu. Vegir voru lítið annað en troðningar og ekki hæfir vögnum. Hannes var talinn eyðslusamur framfaramaður í samanburði við fyrri stjórn Dana, þar sem starf landsstjórans snérist um að spara sem mestu fyrir krúnuna. Vegir voru lagðir frá Reykjavík og Sogið, Jökulsá í Axlarfirði og Brúará voru brúaðar. Hannes var stórhugaður og vildi helst leggja járnbrautarteina austur frá Reykjavík, en þau áform voru talin ofdýr.

Góð atvinna og hagvöxtur

Heimastjórnartímabilið var byrjunin á vélvæðingu skipaflotans og stofnun Eimskipafélagsin. Hannes sá til þess að fé væri lagt til hafnargerðar í Reykjavík, og að Alþingi myndi styrkja Eimskipafélagið um byggingu strandferðaskipa, til að auðvelda fólks- og vöruflutninga um landið. Hafnargerðin og störfin sem mynduðust í kringum útgerðirnar voru mikilvægt skref í átt að þéttbýlismyndun á Íslandi, sjálfstæði og þeirra velmegunar sem við þekkjum í dag.

Sjálfbærar borgir og samfélög

Fyrstu vísar að iðnaði fóru að spretta fram á þessum tíma. Stofnaðar voru ullarverskmiðjur í Mosfellsveit og Eyjafirði, einnig innlend klæðagerð, veiðarfæragerð, ölgerð, smjörlíkisgerð og sápugerð. Það var líka á þessu tíma sem fallvötn voru beisluð til að búa rafmagn, með lítilli virkjun í Hafnafirði 1907. „Fossalögin“ 1907 sem Hannes mælti fyrir tryggði það einungis þeir með íslenskt ríkisfang mættu eiga fossa og nýta þá.

Líf á landi

Eitt af hjartansmálum Hannesar Hafstein voru landgræðslu- og skógræktarmálin. 1907 lagði Hannes fram „Frumvarp til laga um skógrækt og varnir gegn uppblæstri lands.“ Þessi lög voru byrjunin á Landgræðslunni og Skógræktinni. Í ræðu sini á þingi sagði Hannes ráðherra:

Þetta frumvarp má skoða sem nokkur skonar mælikvarða á framtíð þessa lands og viljann til að leggja nokkuð á sig fyrir þá, sem lifa eiga á ókomnum tímum. Það er ekki hægt að búast við því, að það fyrirtæki, sem hjer er um að ræða, gefi af sér neinn arð í dag eða á morgun. Hjer er farið fram á, að leggja á sig kostnað til þess að reyna gjöra landið betra, vistlegra, og fegurra fyrir börn vor og þeirra börn. Það byggist á þeirri ósk, að gróður landsins ekki einungis haldist við, heldur aukist og margfaldist á ókomnum árum, og það byggist á því trausti, að það, sem hefur verið, geti orðið aptur.