VEITINGAHÚSIÐ / THE RESTAURANT
![27337343_1786921244715758_1570197640354017071_n (1)](https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/09/27337343_1786921244715758_1570197640354017071_n-1.jpg)
![27788366_1811107235630492_2341544237307733527_o](https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/09/27788366_1811107235630492_2341544237307733527_o.jpg)
MATURINN Í HANNESARHOLTI
Heimatilbúinn og hollur matur útbúinn frá grunni.
Á matseðli okkar er alltaf að finna úrval grænmetisrétta ásamt ferskum fiskrétti dagsins. Réttirnir, sem allir eru heimatilbúnir frá grunni, eru unnir úr hráefnum sem við sækjum eftir megni í nærumhverfi okkar. Á matseðli kappkostum við að hafa alltaf gott úrval Vegan-rétta, en þeir eru framleiddir án dýraafurða.
![food-hannesarholt-22](https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/09/food-hannesarholt-22-scaled.jpg)
Allt bakkelsi er bakað í húsinu og má gjarnan finna í kökuborði okkar hjónabandssælu, eplaköku, veganköku, súkkulaðiköku og gjarnan marengs eða pekan hnetuköku. Grænmetisbaka er alltaf til og er hægt að fá hitaða grænmetisböku á meðan húsið er opið eftir að eldhúsinu hefur verið lokað.
![food-hannesarholt-23](https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/09/food-hannesarholt-23-scaled.jpg)
Meðvituð innkaupa- og neyslustefna
Í Hannesarholti ríkir umhverfismeðvituð neyslu-, matar- og innkaupastefna. Við leggjum okkar af mörkum, til að lágmarka vistsporið sem húsið og starfsemin skilur eftir sig með flokkun sorps og leggjum okkur fram um að það sem fellur af í rekstrinum, fái nýtt líf í höndum annarra.
Réttirnir, sem allir eru heimatilbúnir frá grunni, eru unnir úr hráefnum sem við sækjum í nærumhverfi okkar.