Bygging núverandi húss

Húsið að Grundarstíg 6 er byggt árið 1906 skv. fasteignaskrá. Húsið reistu þau Stefán Kr. Bjarnason og Ingibjörg Zakkaríasardóttir (dóttir Zakkaríasar á Bergi) eins og fram kemur í skemmtilegri grein Guðjóns Friðrikssonar um sögu Grundarstígsbæjanna (1).

Guðjón segir einnig frá tveimur minnisverðum karakterum sem bjuggu í kjallaranum, Guðrúnu Guðmundsdóttur sem kölluð var Gunna klukka og Þórunni Káradóttur, Katta-Tótu, sem átti fjölmarga ketti og því lyktin ekki alltaf sem best í kjallaranum.


Starfsemi í húsinu í gegnum tíðina

Upplýsingarnar hér á eftir eru engan veginn tæmandi en settar fram eftir bestu vitund. Allar leiðréttingar og viðbætur eru vel þegnar.

  • 1923: Fæði fæst á Grundarstíg 6 (augl.)
  • 1945: Kjólar sniðnir og mátaðir á Grundarstíg 6 (augl.) Svona auglýsing birtist af og til næstu árin.
  • 1946: Stúlka óskast til sauma (augl.)
  • 1947: Í auglýsingu um týnda golftreyju er minnst á að henni eigi að skila á Prjónastofuna Grundarstíg 6 (augl.)
  • 1947: Tveir menn geta fengið keypt fæði í prívathúsi (augl.) – einnig auglýst 1948
  • 1950: Píanókennsla – Magnús B. Jóhannesson (augl.)
  • 1967: Ódýrir legsteinar útvegaðir frá Noregi (augl.)


Heimildir:

1. Guðjón Friðriksson. (1990, 13. október).  Úr sögu Grundarstígs:  Á slóðum Grundarbæjanna í Reykjavík.  Lesbók Morgunblaðsins. Sótt 19. júlí 2010 af http://www.timarit.is/view_page_init.jsp?issId=242470&pageId=3308506