Taktu’ í hornin á bola eftir Hannes Hafstein

Aumra smámenna yfirráð
aldregi máttu þola.
Trú þu aldrei á tudda náð.
Taktu í hornin á bola.

Þó að hvasst yfir lög og láð
leiki sjer ísköld gola,
mundu, ætíð er annað ráð,
en að krjúpa og vola.