HLJÓÐBERG
Tónleika- og fyrirlestrasalur

UM HLJÓÐBERG
Í viðbyggingu (gengið inn frá Skálholtsstíg) er nýr og vandaður fjölnota salur.

Hljóðberg er tónleikasalur Hannesarholts og jafnframt stærsta útleigurými hússins. Sérstaklega var hugað að hljóðhönnun og hljóðvist salarins með flutning klassískrar tónlistar í huga. Í salnum er rómaður 211 Steinway flygill, sem var sérstaklega valinn fyrir Hannesarholt.

Hljóðberg hentar einnig til funda-, námskeiða og ráðstefnuhalds fyrir 15-80 manns og er bæði skjávarpi og hátalarakerfi til staðar.

SKOÐAÐU ÞIG UM Í HLJÓÐBERGI
Skoðaðu þig um með hjálp Google Maps 360° mynda.