Í hljóðfalli leikandi ljóða

lauga jeg huga minn,

og nýja, kælandi krafta

og kvikari blóðrás finn.

 

Mjer finst sem bylgjur mig beri

og blakti um vanga mjer þýtt,

og svalandi kjassi og kyssi

og hvísli svo lokkandi blítt.

 

Áfram, áfram þær líða,

út frá ströndum þær ber.

Raddir frá hyldýpi hafsins

hljóma í sálu mjer.