Aumra smámenna yfirráð

aldregi máttu þola.

Trú þú aldrei á tudda náð.

Taktu í hornin á bola.

 

Þó að hvasst yfir lög og láð

leiki sér ísköld gola,

mundu, ætíð er annað ráð,

en að krjúpa og vola.