Úr kristalglasi gullið drakk ég vín
og gleðin kyssti varir mér.
Í djörfum leik sér lyfti sála mín
sem lausklædd mey í dansinn fer.
Ég skæru glasi hélt í hendi fast,
sem hönd það væri’ á kærum vin.
En, minnst er varði, bikar sundur brast,
og brotin skáru æð og sin.