Nýútkominn diskur tríós Sunnu Gunnlaugs, ‘Distilled’ fær nú hverja glimrandi umfjöllun á fætur annari erlendis. Jazzgagnrýnandi Rhapsody valdi ‘Distilled’ sem einn af top 10 diskum september mánaðar. Diskurinn fékk einnig nýlega umfjöllun hjá London Jazz News sem segir Sunnu vera “sérlega smekklegan píanista” og diskinn vera “ferskan og óaðfinnanlega fram settan af þéttu tríói, stútfullu af hugmyndum“. Jazznytt í Noregi mælir með disknum í nýjasta tölublaði sínu og Jazz Japan gefur honum einnig frábæra dóma og segir “stemmningu diskins ná hæðum sem einungis topp-tónlist nær.

Tríóið fagnar nú útkomu disksins með tvennum tónleikum í Hannesarholti 26 og 27 september kl. 20:00. Hægt er að kaupa miða á www. midi.is og við inngang. Gengið er inn frá Skálholtsstíg.

Sunna Gunnlaugs-píanó
Þorgrímur Jónsson-bassi
Scott McLemore-trommur

SunnaTrio37