Hleð Viðburðir

Fimmtudaginn 14. mars verður haldin dagskrá til heiðurs höfundarverki Álfrúnar Gunnlaugsdóttur í umsjón Soffíu Auðar Birgisdóttir bókmenntafræðings og Hermanns Stefánssonar rithöfundar. Sú fyrrnefnda mun leiða gesti í gegnum höfundarverk Álfrúnar Gunnlaugsdóttur en Álfrún gaf út sitt fyrsta skáldverk, smásagnasafnið Af manna völdum, árið 1984 og síðan hefur hún sent frá sér sjö skáldsögur, sú síðasta Fórnarleikar kom út 2016.

Baksvið skáldsögunnar Yfir Ebrófljótið frá árinu 2001 er borgarastyrjöldin á Spáni en nýlega var endurútgefin bók Hallgríms Hallgrímssonar, Undir fána lýðveldisins, sem segir frá þátttöku höfundar í borgarastyrjöldinni og mun Einar Kári Jóhannsson, fulltrúi Unu útgáfuhúss, segja frá tengslum þessara tveggja bóka.

Þá verður stillt upp rennibraut um Álfrúnu og verk hennar sem rithöfundar, fræðimenn og leikarar renna sér niður á leifturhraða og bjóða upp á örfyrirlestra, upplestur og óvæntar uppákomur. Einnig verða tónlistaratriði af spænskum meiði í höndum Ara Franks Ingusonar gítarleikara og Daníels Sigurðssonar trompetleikara.

Meðal gesta verður Álfrún Gunnlaugsdóttir sem þó mun ekki sitja fyrir svörum enda tala verk hennar fyrir sig sjálf.

Upplýsingar

Dagsetn:
14/03/2019
Tími:
20:00 - 22:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904