Hleð Viðburðir

Fimmtudagskvöldið 12.mars verður tónleikasögustund í Hannesarholti með Gísla Helgasyni blokkflautuskáldi úr Vestmannaeyjum og Herdísi Hallvarðsdóttur bassaleikara úr Skaftahlíðinni í Reykjavík. Þau hafa lengi fengist við tónlist, Herdís spilaði með Grýlulnum, Karma, Hálft í hvoru og Islandicu, og Gísli spilaði með Arnþóri tvíburabróður sínum í mörg ár og var einn upphafsmanna Vísnavina, hann lék með Islandicu og Hálft í hvoru og fleiri hljómsveitum. Hann hefur komið að gerð fjölmargra hljómplatna og hljómdiska. Auk þess hefur hann verið afkastamikill dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu.

Með þeim verður Guðmundur Benediktsson gítarleikari og söngvari, en hann lék Jesú Krist í uppfærslu á Jesus Christ Superstar í Austurbæjarbíói 1973 og hefur leikið með fjölda hljómsveita, þ.á.m. Brimkló, Mánum, og Islandicu, en sú hljómsveit ferðaðist víða erlendis og hélt á annað hundrað tónleika í 10 löndum Evrópu.

Hafsteinn Guðfinnsson gítarleikari úr Vestmannaeyjum verður einnig með, en Hafsteinn er afburða gítarleikari og hefur spilað með ýmsum. Þeir Gísli hafa spilað saman í um tvo áratugi með fleiri peyjum úr Eyjum. Hafsteinn er manna fróðastur um söngmenningu Vestmannaeyinga og er hafsjór af skemmtilegum sögum. Ung söngkona Dagbjört Andrésdóttir mun einnig taka þátt í tónleikunum, en hún ólst upp í Söngskólanum Domus Vox og stundar nú söngnám í Söngskóla Sigurðar Dementz.

Flutt verða mörg af lögum þeirra Gísla og Herdísar, sagðar skemmtisögur og salurinn virkjaður með í fjöldasöng.

Kvöldverður á 1.hæðinni á undan. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is

Upplýsingar

Dagsetn:
12/03/2020
Tími:
20:00 - 21:00
Viðburður Categories:
,

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904