Hleð Viðburðir

Magnea Tómasdóttir og Pálmar Ólason stýra Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 14.október kl.14. Þau hafa sungið saman í gegnum ævina, enda er Magnea bróðurdóttir Pálmars.
Þau koma úr fjölskyldu sem hefur alltaf sungið mikið og í fjölskylduboðunum er mikið fjör. Lögin sem þau syngja með gestum verða aðallega alþýðulög, dægurlög og danslög frá miðbiki 20.aldar.

Syngjum saman í Hannesarholti veturinn 2023-2024 er tileinkað Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð 14.september 2023. Hannesarholt er til vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburði með mér þar til heimsfaraldurinn truflaði taktinn. Um leið og við minnumst hennar og heiðrum, viljum við taka hana okkur til fyrirmyndar. Söngurinn fylgdi henni ævina út, þar til hún lést 11.júlí síðastliðinn. Frítt er inná Syngjum saman í minningu hennar í vetur, textar á tjaldi og allir geta sungið með. Allar kynslóðir velkomnar.

Veitingahúsið í Hannesarholti er opið frá 11:30-16:00 alla daga nema sunnudaga og mánudaga.

Upplýsingar

Dagsetn:
14/10/2023
Tími:
14:00 - 15:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map