Hleð Viðburðir

Ný Goð

Stefán Boulter opnar málverkasýningu sína “Ný Goð” í Hannesarholti föstudaginn 21.apríl kl.16-18. Hann hefur kosið að kalla það sem hann gerir „ljóðrænt raunsæi“. Verkin eru táknmyndir sem eru frásagnarlegs eðlis, bæði persónulegar og byggðar á þekktum og fornum grunni. Hugleiðingar um okkar sammannlegu erkitýpur, náttúruna, tilvist okkar í henni og dýrkun hennar skipar þar stóran sess. Mannveran, dýrin, hlutir, viðvera og ára þeirra eru viðfangsefni sem eru í forgrunni. Málverkin endurspegla andlegt og fagurfræðilegt gildi listsköpunar og bera verkin merki þess.

Stefán (f. 1970) stundaði nám í grafískri hönnun í Tempe, Arizona í Bandaríkjunum 1991-1992 og listnám við Istituto d‘ Arte di Firenze í Flórens á Ítalíu 1994-1996. Hann var aðstoðarmaður Odd Nerdrum í Noregi og Íslandi 2001-2004. Stefán hefur sýnt verk sín í söfnum og galleríum bæði hér heima og erlendis, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum, m.a. í Massachusetts í Bandaríkjunum, Barcelona á Spáni, Kjarvalsstöðum og Listasafninu á Akureyri.

Upplýsingar

Dagsetn:
21/04/2023
Tími:
16:00 - 17:00

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map