Hleð Viðburðir
Event Series Event Series: Á inniskónum

Á inniskónum: Elín Hall og Magnús Jóhann

31.ágúst 2024

25. maí kl 20

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna við kvikmyndagerð sem Elín er á kafi í neyðumst við til þess að fresta tónleikunum þangað til 31. ágúst. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en miðahafar fá tölvupóst þar sem þeim býðst endurgreiðsla ef ný dagsetning hentar þeim ekki. Ansi leitt með þessum fyrirvara en vonandi sjá flestir sér fært að mæta í haust!

Á inniskónum er spjalltónleikaröð Magnúsar Jóhanns píanóleikara þar sem hann fær til sín gesti víðsvegar að úr tónlistarlífi íslendinga. Magnús setur tónlist viðmælenda sinna í nýjan búning með dyggri aðstoð hljóðgervla, trommuheila og hljómborða af ýmsum toga og spyr þá svo spjörunum úr. Gestur Magnúsar þann 25. maí nk. er tónlistarkonan Elín Hall.

Hún skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Lof mér að falla árið 2018. Hún er lagahöfundur, leikkona og söngkona og hefur undanfarin ár starfað bæði við leiklist og tónlist. Nýjasta hljómplata hennar heyrist í mér? hlaut Kraumsverðlaunin, var tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum og hlaut einnig tilnefningar fyrir söng og textagerð. Um þessar mundir fer Elín með hlutverk ungrar Vigdísar Finnbogadóttur í þáttum Vesturports um ævi hennar samhliða öðrum verkefnum. Magnús og Elín kynntust fyrst þegar þau léku saman í hljómsveitinni Náttsól en Magnús hefur einnig leikið inná hljómplötur hennar í gegnum tíðina. Þau munu ræða sköpunarferli Elínar, vegferð hennar í tónlistinni, hvernig leiklistin kemur inn í þetta allt saman auk þess að telja í vel valin lög eftir Elínu.

Miðaverð er 5.900 kr og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg.

Upplýsingar

Dagsetn:
31. ágúst
Tími:
20:00 - 22:00
Series:
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map