Hleð Viðburðir

Íslenskt samfélag er talið opið og umburðarlynt, en hver er upplifun fatlaðs fólks á jöfnuði, aðgengi og inngildingu í íslensku samfélagi.

Við fá um til okkar Steinunni Ásu (Stása) úr “Með okkar augum”, Hauk Guðmundsson – formann Átaks, Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur – leikkonu og félagsfræðing, og Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur – framkvæmdastjóra Átaks. Þau munu deila frá sinni reynslu og þekkingu og skapa líflegt samtal við áheyrendur um þetta mikilvæga mál.

Fundarstjórn verður í traustum höndum Guðrúnar Sóleyjar.

Fundurinn verður í beinu streymi og aðgengilegur á facebooksíðu Hannesarholts.

Þetta er gjaldfrjáls viðburður í boði Hollvinafélags Hannesarholts og öll eru velkomin.

Upplýsingar

Dagsetn:
9. október
Tími:
17:30 - 19:00
Series:
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map