Hleð Viðburðir

Syngjum saman í Hannesarholti, laugardaginn 5. október 2024 kl. 14, með frændunum Jóhanni Vilhjálmssyni og Gunnari Kr. Sigurjónssyni. Þeir eru gestum Hannesarholts að góðu kunnir, enda hafa þeir stjórnað söngstundinni margoft áður af mikilli snilld. Þeir bræðrasynir ólust upp við tóna systkinanna Ellyjar og Vilhjálms, enda var Vilhjálmur faðir Jóhanns og Elly föðursystir þeirra beggja. Jóhann hefur verið í kórum allt frá blautu barnsbeini og Gunnar hefur spilað á hljómborð við ýmis tækifæri í gegnum tíðina, jafnframt því að sinna útgáfustarfsemi og sýna töfrabrögð ýmiskonar.
Allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir. Textar birtast á tjaldi svo allir geti sungið með.

Upplýsingar

Dagsetn:
5. október
Tími:
14:00 - 15:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map