Hleð Viðburðir
Gunnhildur Þórðardóttir opnar málverkasýningu sína MAGN laugardaginn 12.október kl.14-16. Sýningin er sölusýning og stendur til 29.október.
Á sýningunni eru glæný verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur bæði tví – og þrívíð sem fjalla um liti lífsins, neyslu mannsins og magn þ.e. stærð, fjölda eða jafnvel mátt eða afl.
Listin er alþjóðlegt hreyfiafl og þannig vill listamaðurinn túlka heiminn í gegnum verk sem vonandi hreyfa við áhorfendum. Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr endurunnum listaverkum á striga, endurnotuðum rafmagnsvírum, brotum eða afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri, plasti og málmum.
Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari. Hún lauk tvíhliða BA námi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiploma í listkennslu við LHÍ á haustönn 2019. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar, Kirsuberjatrénu, í Suðsuðvestur, Flóru á Akureyri, í SÍM salnum, Slunkaríki, sal Íslenskrar grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands, Hafnarborg, Listasafni Reykjanesbæjar, Svavarssafni, Norræna húsinu, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur tekið þátt í fjölda upplestra.
Sýningin er opin á opnunartíma Hannesarholts, frá 11.30-16 alla daga nema sunnudaga og mánudaaga.

Upplýsingar

Dagsetn:
12. október
Tími:
14:00 - 16:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map