Laugardag 19. október næstkomandi kl.13.30 mun Gunnhildur Þórðardóttir myndlistarmaður taka á móti gestum í Hannesarholti og leiða þá um sýningu sína Magn sem opnaði sl. helgi. Á sýningunni eru nýleg verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur bæði tví – og þrívíð sem fjalla um liti lífsins, neyslu mannsins og magn þ.e. stærð, fjölda, ofnotkun efna eða jafnvel magn sem mátt eða afl.Listin er alþjóðlegt hreyfiafl og þannig vill listamaðurinn túlka heiminn í gegnum verk sem vonandi hreyfa við áhorfendum og fá þau til þess að spyrja spurninga.

Sýningin verður er opin til 29. október frá kl.11.30-16 alla daga nema sunnudaga og mánudaga. Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr endurunnum listaverkum á striga, endurnotuðum rafmagnsvírum, brotum, hlutum eða afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri, plasti og málmum.

Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari. Hún lauk tvíhliða BA námi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiplóma í listkennslu við LHÍ á haustönn 2019. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar, Kirsuberjatrénu, í Suðsuðvestur, Flóru á Akureyri, í SÍM salnum, Slunkaríki, sal Íslenskrar grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands, Hafnarborg, Listasafni Reykjanesbæjar, Svavarssafni, Norræna húsinu, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur tekið þátt í fjölda upplestra.

Nánari upplýsingar veita Gunnhildur Þórðardóttir s.8983419 gunnhildurthordar@gmail.com eða Ragnheiður J. Jónsdóttir s. 864-0693/511 1904 hannesarholt@hannesarholt.is