Syngjum saman í Hannesarholti með Völu og Óskari Loga, laugardaginn 12.apríl kl.14.

Óskar Logi er leiðtogi rokk­sveit­arinnar The Vinta­ge Cara­v­an, sem hann stofnaði 11 ára gam­all en hann er gít­ar­leik­ari, söngv­ari, texta- og laga­höf­und­ur. Valdís Eiríksdóttir, Vala, er fjölmiðla- og tónlistarkona sem hefur verið að gefa út vögguvísnaplötur fyrir börn.. og fullorðna auðvitað líka, talsetja barnaefni og útvarpast.

Um svipað leyti í fyrra tóku þau samsönginn að sér og komust svo að því nokkrum dögum seinna að laumufarþegi hafi verið með. Ári seinna hafa þau hann aftur með sér, utan móðurkviðs og hvetja aðra til að hafa börnin með sömuleiðis. Lagalistinn kemur til með að henta börnum jafn sem fullorðnum.

Textar á tjaldi og allir syngja með. Ókeypis inn.