This event has passed.

STAÐUR OG STUND opnun
25. október @ 14:00 - 16:00
Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir opnar sýningu sína í Hannesarholti laugardaginn 25.október á útsaumsverkum sem hún hefur unnið síðustu fimm ár. Munstrin teiknar hún sjálf en fyrirmyndirnar eru staðir þar sem stundirnar í lífi hennar hafa markað spor.
Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir hefur átt fjölbreyttan starfsferil en síðustu árin snúið sér að útsaumi sem hefur átt hug hennar allan. Hún leitar fanga í minningasafninu og staldrar við á stöðum sem hafa haft afgerandi áhrif á lífshlaupið. Auk þess hefur hún saumað út myndir af húsum sem skipta vini og vandamenn máli og þannig fært þeim útsaumaðar minningar.
Guðrún Jarþrúður teiknar öll munstrin sjálf. Myndirnar eru saumaðar í bláan java með DMC þræði og kryddaðar með öðru bandi. Myndirnar eru u.þ.b. 30×30 sm án rammans. Í hverri mynd eru rétt um 250 m af þræði.
Sýningin er sölusýning og er opin á opnunartímun Hannesarholts, miðvikudaga til laugardaga kl.11.30-16. Sýningin stendur til 13.nóvember.

