2025-12-05T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir
Velkomin á BÓKVIT í Hannesarholti laugardaginn 8.nóvember 2025, þar sem höfundar segja frá bókum sínum, lesa uppúr þeim og selja þær jafnvel. Þessir rithöfundar kynna eftirtaldar bækur:

Guðný Anna Annasdóttir – Ljóni gerir usla hjá púdda púdd
Oddbjörg Ragnarsdóttir – Dísa fer í sveitina
Steindór Ívarsson – Herranótt
maó alheimsdóttir – Hvalbak
Gengið inn frá Hljóðbergi. Aðgengi fyrir fatlaða. Ókeypis inn.

Veitingahúsið á efri hæðinni opið að viðburði loknum.

Hannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Nú býður Hannesarholt rithöfundum að lesa uppúr bókum sínum á laugardögum kl.11.30-12.30 á eftirfarandi dagsetningum: 20.september, 18.október, 25.október, 8.nóvember, 15.nóvember, 22.nóvember og 6.desember.

Upplýsingar

  • Dagsetn: 8. nóvember
  • Tími:
    11:30 - 12:30
  • Viðburður Category:

Staðsetning

Go to Top