2025-12-05T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir
Velkomin á BÓKVIT í Hannesarholti laugardaginn 15.nóvember 2025, þar sem höfundar segja frá bókum sínum, lesa uppúr þeim og selja þær jafnvel. Þessir rithöfundar kynna eftirtaldar bækur:
Ásrún Magnúsdóttir – Brásól Brella, vættir, vargar og vampýrur og 
Fróði The Forgotten Yule Lad
Eyþór Rafn Gissurarson – Vísnasprettur
Lilja Magnúsdóttir – Feluleikur
Sandra B.Clausen – Klúbburinn, Jól á Tenerife
Sigríður Helga Sverrisdóttir – Haustið í greinum trjánna
Díana Sjöfn, Rebekka Sif, Sjöfn Asare – Innlyksa
Gengið inn frá Hljóðbergi. Aðgengi fyrir fatlaða. Ókeypis inn.
Veitingahúsið á efri hæðinni opið að viðburði loknum.
Hannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Nú býður Hannesarholt rithöfundum að lesa uppúr bókum sínum á laugardögum kl.11.30-12.30 á eftirfarandi dagsetningum: 20.september, 18.október, 25.október, 8.nóvember, 15.nóvember 22.nóvember og 6.desember.

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top