2026-02-28T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir
Sífellt fleiri drengir standa frammi fyrir kröfum sem þeim reynist erfitt að uppfylla. Margir finna sig jaðarsetta, ráðalausa eða án skýrra fyrirmynda. Á sama tíma hafa þeir greiðan aðgang að netheimum og nærsamfélagi sem geta boðið upp á ranghugmyndir, skaðlegt efni og einföld svör við flóknum spurningum.
Hver er staða drengja í samfélaginu í dag? Hvað veldur því að sumir dragast inn í hættuleg hugmyndakerfi og hvernig getum við sem samfélag brugðist við? Á fundinum verður fjallað um áskoranir drengja, áhrif umhverfis og netsins, og leiðir til að styðja við heilbrigðan þroska, gagnrýna hugsun og jákvæða þátttöku í samfélaginu.
Viðmælendur og fundarstjóri verða auglýstir þegar nær dregur.
Fundurinn er opin öllum og streymt verður af fundinum á netinu.

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top