
Syngjum saman í Hannesarholti með Sigga & Ingibjörgu
7. febrúar @ 14:00 - 15:00
Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 7.febrúar er í höndum Sigga & Ingibjargar, tónlistardúós sem elskar að syngja, skapa og hafa gaman – helst með fullt af fólki á öllum aldri! Þau hafa í mörg ár leitt samsöng, samspil, tónlistarsmiðjur og ævintýraleg verkefni sem einkennast af leikgleði, samveru og opnu rými fyrir þátttöku.
Þau hafa samið tónlist með börnum fyrir Hörpu, sent tónlist íslenskra skólakrakka út í geim og fengið bæði verðlaun og tilnefningar fyrir skapandi og lifandi fjölskylduverkefni.
Í Syngjum saman leiða Siggi&Ingibjörg samsöng fyrir börn og fullorðna þar sem áherslan er á gleði, leik og samveru í tónlist
Textar á tjaldi.
Frítt inn – öll velkomin!
Siggi&Ingibjörg hafa starfað saman við tónleikahald, tónsmíðar og í smiðjuvinnu með fólki á öllum aldri um langt árabil, hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir störf sín. Þar á meðal er 10 ára afmælislag tónlistarhússins Hörpu sem hópur 10 ára tónskálda samdi undir handleiðslu þeirra. Verkefnið hlaut Lúðurinn árið 2022 sem viðburður ársins. Þau unnu einnig að nýrri tónsmíð fyrir geimverur með stórum hópi grunnskólabarna á Íslandi árið 2023 – Sendum tónlist út í geim!, ásamt tónlistarkonunni Sóleyju Stefánsdóttur og hönnunarteyminu ÞYKJÓ. Verkefnið hlaut tilnefninu til alþjóðlegu YAM tónlistarverðlaunanna árið 2023 sem verkefni ársins í flokki þátttökuverkefna.
Sigurður Ingi er lagahöfundur, hljóðfæraleikari og tónlistarkennari með áherslu á trommur og samspil. Ingibjörg Fríða er söngkona og dagskrárgerðarkona og stýrir meðal annars Þjóðsögukistunni, sem er eitt vinsælasta hlaðvarp RÚV og ætlað er börnum og fjölskyldum. Þau vinna nú að nýrri tónlist fyrir Þjóðsögukistuna ásamt því að snúast í alls kyns smiðjum, verkefnum og tónleikahaldi.
@siggiogingibjorg
www.facebook.com/siggiogingibjorg
Sýna minna
