Erla Halldórsdóttir veitir leiðsögn um málverkasýningu sína LANDSLAG laugardaginn 21.febrúar kl.14.30-15.30.
Meginþemu sýningarinnar er landslag, himinn og jörð. Það er hins vegar ekki alltaf nákvæmt landslag, heldur tilfinning hennar fyrir landslagi. Á ferðalögum um landið greypast í hugann hlutar úr landslagi sem enda loks á striga. Landslag er svo óendanlega margbreytilegt og Erla hefur gaman af að mála eftir minni og tilfinningu. Þegar hún hefst handa við mynd eru það litirnir sem oftast ráða för og þegar hún vinnur með akrýl eru það oftast jarðlitir. Öðru máli gegnir um soft pastel, sem er tiltölulega nýr miðill. Þar eru oftast fyrirmyndir, samt ekki ákveðinn staður, heldur skeytt saman úr myndum sem hún tekur eða hluti af landslagi sem henni finnst áhugaverður.
Erla hefur numið myndlist hjá hinum ýmsu listamönnum undanfarin ár bæði hérlendis og erlendis, þar á meðal í Myndlistarskóla Kópavogs, á námskeiði hjá Bjarna Sigurbjarnasyni og víðar. Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum, og unnið með olíu, akríl, blandaða tækni og soft pastel.
Sýningin er sölusýning og stendur til 25.febrúar. Hún er opin á opnunartímum Hannesarholts, miðvikudaga, fimmtudaga, föstudaga og laugardaga kl.11.30-16.