Vegna fjölda áskorana hefur stjórn Hollvinafélags Hannesarholts ákveðið að gefa hollvinum tækifæri til að velja um fjölbreyttari leiðir til að greiða árgjald/styrk til félagsins. Hingað til hefur 5000 króna greiðsluseðill verið sendur út árlega, en nú getur fólk valið að greiða ákveðna upphæð mánaðarlega, ársfjórðungslega eða með eingreiðslu.

Áhugasamir geta haft samband við hollvinir@hannesarholt.is og Brynjólfur Magnússon, formaður Hollvina Hannesarholts svarar fyrirspurnum.