Komiði sæl!
Við viljum kynna fyrir ykkur Syngjum saman, ókeypis samfélags- og tónlistarverkefni sem hefur verið byggt upp í Hannesarholti síðustu ár og hefur notið mikilla vinsælda. Nokkur dvalarheimili á höfuðborgarsvæðinu eru reglulegir áhorfendur og þáttakan hefur gífurlega jákvæð sálfélagsleg áhrif á íbúana. Með þessum pósti viljum við dreifa þessum áhrifum um allt land. Verkefnið samanstendur af reglulegum söngstundum í sal Hannesarholts sem jafnframt er streymt í beinni útsendingu, þannig að fólk um allt land getur tekið þátt, hvar sem það er statt.

Markmið Syngjum saman er að skapa hlýja, faglega og aðgengilega söngstund þar sem lögð er áhersla á samveru, gleði og þátttöku. Verkefnið er sérstaklega hugsað fyrir fjölbreytta hópa, þar á meðal eldri borgara og fólk sem vegna heilsu, fötlunar, fjarlægðar eða annarra aðstæðna á erfitt með að sækja viðburði utan heimilis.
Tónlistarfólk leiðir sönginn í Hannesarholti og skapar létt og náið andrúmsloft. Í gegnum streymið gefst dvalarheimilum og dagvistun færi á að skipuleggja eigin sameiginlega söngstund á sama tíma, í tengslum við aðra þátttakendur víðs vegar um landið. Streymið er aðgengilegt á YouTube og því er einnig hægt að horfa á upptökur fyrri viðburða þegar það hentar best.

Við leggjum áherslu á að þátttaka sé einföld og aðgengileg. Syngjum saman fer fram á laugardögum kl.14 í Hannesarholti og í beinu streymi. Texta er ávalt streymt með þannig að auðvelt er að syngja með hvar sem fólk er statt. Við veitum aðstoð um hvernig tengjast má streyminu og eftir þörfum er boðið upp á stuðning við tæknimál. Einnig er hægt að fá efni og ráðleggingar sem auðvelda ykkur að skipuleggja og leiða söngstundina á heimilinu.
Við vonumst til að Syngjum saman geti orðið fastur liður í starfi ykkar og stuðlað að aukinni gleði, virkni og samveru meðal íbúa og gesta. Starfsmaður Hannesarholts sinnir samskiptum við þátttakendur á landsbyggðinni og tekur fagnandi á móti öllum fyrirspurnum.

Leiðbeiningar til að tengjast Syngjum saman á snjall sjónvarpi:




