2026-11-27T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir
Hollvinir Hannesarholts bjóða ykkur í Hræring (e. mixer) í Hannesarholti föstudaginn 27.03 frá kl. 16–19.
Hræringur er samverustund þar sem fólk kemur saman, kynnist, spjallar og eflir tengslin. Engin formleg dagskrá, bara lifandi og notaleg stemning í fallegu umhverfi Hannesarholts.
Ljúfir tónar í boði Hlyns Helgasonar.
Á boðstólum verða ljúffengir drykkir, bæði áfengir og óáfengir, í boði Bliss og Steindal Heildverslunar.
Allir Hollvinir eru velkomnir og fyrir þau sem vilja bætast í hópinn verður hægt að skrá sig í félagið á staðnum.
Takið endilega vini með og eigum saman góða stund!
Stjórn Hollvinafélags Hannesarholts

Upplýsingar

  • Dagsetn: 27. mars
  • Tími:
    16:00 - 19:00

Staðsetning

Go to Top