2026-05-30T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Á tónleikunum flytja sellóleikarinn María Qing Sigríðardóttir og píanóleikarinn Ásta Dóra Finnsdóttir tónverk með ólíkum stíl og menningarheimum handan hafsins — allt frá sígildum tónum Beethovens til spænskra hljóma Cassados.

Ásta Dóra Finnsdóttir, 19 ára, hóf píanónám samkvæmt Suzuki-aðferðinni fjögurra ára gömul. Hún nam við Menntaskólann í tónlist og Barratt Due tónlistarskólann í Osló áður en hún hóf háskólanám við Curtis Institute of Music í Bandaríkjunum, þar sem hún hefur nú lokið fyrsta ári.

María Qing Sigríðardóttir hefur sérstaka ástríðu fyrir kammertónlist og að miðla tónlist á fjölbreyttan hátt til áheyrenda en hún helgar því stóran hluta listsköpun sinnar. Hún nam við Tónskóla Sigursveins og hefur stundað nám við tónlistarháskólann í Stuttgart frá árinu 2023. (www.mariaqingsig.com)

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top