Hleð Viðburðir

Í kjölfar Lekamálsins, svonefnda, lét forsætisráðherra þau orð falla að öll þjóðin þyrfti að draga lærdóma af málinu. Hverjir gætu þeir lærdómar verið? Á fundinum verður sjónum beint að samspili lýðræðis, stjórnmála og stjórnsýslu að þessu leyti. Hvaða ramma setja lögin? Er þörf á bættu siðferði þeirra sem fara með valdið? Hvaða leiðir á að fara? Hvaða meginatriði gilda í eftirliti með valdhöfum og hvaða leiðum búum við yfir til þess að draga stjórnvöld til ábyrgðar?

Framsögumenn verða:

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, dósent í opinberri stjórnsýslu og stefnumótun

Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki

Fundurinn er haldinn á vegum rannsóknarverkefnisins, Hvað einkennir íslenskt lýðræði?

Fundarstjóri: Henry Alexander Henrysson

 

Ókeypis inn – allir velkomnir.

Léttur kvöldverður er framreiddur frá kl.18.30. Borðapantanir í síma 511-1904