Hleð Viðburðir

Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum, gjarnan með áfengi um hönd. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks. Fyrsta söngstundin, verður haldin sunnudaginn 13.október kl.16, og mun Þórunn Björnsdóttir, kórstjóri leiða sönginn, Karl Olgeirsson sjá um píanóleik og Jón Rafnsson bassaleikari spila með. Textar munu birtast á skjá. Aðgangseyrir kr.1000.

Borðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir söngstundinni.

 

Upplýsingar

Dagsetn:
13/10/2013
Tími:
16:00 - 17:00
Verð:
ISK1000
Viðburður Category:

Staðsetning

1.hæð og Hljóðberg