Hleð Viðburðir

Önnur gönguferðin af fjórum sem fyrirhugaðar eru á vegum Hannesarholts með Guðjóni Friðrikssyni, sagnfræðingi stefnir á Skólavörðustíg og Skólavörðuholt. Ferðirnar byrja í Hannesarholti á Grundarstíg 10 kl. 11:00 og enda í Hljóðbergi við Skálholtsstíg, þar sem sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar. Auk þess er boðið upp á skoðunarferð um húsið fyrir þá sem það vilja. Gönguferðin tekur u.þ.b klukkustund. Fáir eru betur að sér en Guðjón um húsin og fólkið í gömlu Reykjavík og víst er að menn fara fróðari af hans fundi. Hann skrifaði m.a ævisögu Hannesar Hafstein Ég elska þig stormur sem út kom árið 2005. Veitingahúsið Borðstofan á 1.hæð hússins verður opin og er þar ýmislegt ljúfmeti í boði, bæði sætt og ósætt. Við bendum á að kaupa má miða á midi.is en einnig má panta miða með því að hringja í s.. 511 1904.

Næstu fyrirhuguðu ferðir eru þessar:

Sunnudagurinn 18.maí kl.11: Laufásvegur og nágrenni

Sunnudagurinn 15.júní kl.11: Umhverfis Tjörnina

Upplýsingar

Dagsetn:
27/04/2014
Tími:
11:00 - 12:30
Verð:
ISK2000
Viðburður Category:
Vefsíða:
midi.is

Skipuleggjandi

Hannesarholt

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map