Hleð Viðburðir

Læknirinn, vísindamaðurinn, skáldið og fjölskyldumaðurinn Valgarður Egilsson hefur ekki verið við eina fjölina felldur. Föstudaginn 17. apríl gefst landsmönnum kostur á að njóta samvista með Valgarði og konu hans, Katrínu Fjeldsted og börnum.  Valgarður hyggst blanda saman skemmtun og fróðleik; hann ræðir hugmyndir sem tengjast landnámi og sögu Íslands, nánar tiltekið á vatnasviði Ölfusár. Margir landnámsmenn tilheyrðu “tap-liðinu” í Noregi. Hann ræðir merkan þátt Ölfusinga i landakönnun á Norðvestur-Atlantshafi. Milli frásagna munu afkomendur  Valgarðs koma með innlegg: rímnakveðskap, söng og píanóleik. Katrín Fjeldsted stýrir samkomunni.
Miða er hægt að kaupa á www.midi.is og kostar 1000 kr. Veitingastofurnar á 1.hæð eru opnar frá kl.18. Borðapantanir í síma 511-1904. 

Upplýsingar

Dagsetn:
17/04/2015
Tími:
20:00 - 21:15
Verð:
ISK1000
Viðburður Category:
Tök Viðburður:
, , , ,
Vefsíða:
http://midi.is/tonleikar/1/8906/Kvoldstund_med_Valgardi_Egilssyni_og_fjolsk

Skipuleggjandi

Hannesarholt

Staðsetning

Hjóðberg
Grundarstíg 10
Reykjavik, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904
View Staðsetning Website