Hrafnar þjóðlagasveit
25/09/2015 @ 20:00
| kr.3000Hrafnar eru hljómsveit sem hefur starfað frá árinu 2008 og er skipuð bræðrunum Georg og Vigni Ólafssonum, bræðrunum Helga og Hermanni Inga Hermannssonum og Hlöðveri Guðnasyni. Hér eru engir nýgræðingar á ferð, en allir eiga þeir farsælan feril í tónlistinni með vinsælum hljómsveitum gegnum tíðina.
Hrafnar gefa sig út fyrir að vera þjóðlagasveit og bendir hljóðfæraskipan hennar sannarlega í þá átt; banjó, mandólín, kontrabassi, gítar, flautur, munnhörpur, trommur og ásláttur allskonar. Rokkið er ekki langt undan, enda uxu hljómsveitarmeðlimir úr grasi á tímum byltingarinnar sem Bítlarnir hrundu af stað. Hrafnar leika gjarnan Írska og Skoska tónlist, country og bluegrass, blues og teygja sig jafnvel lengra suður á bóginn á stundum.
Hrafnarnir eiga talsverðan sjóð eigin laga og texta og munu þeir leyfa tónlistargestum að heyra, bæði það sem hefur verið gefið út og nýrra efni. Lög eins og Ragga, Fríða og Rósa, Karlinn er dauður, Velkominn á Bísann og Stígðu ekki á strikið náðu umtalsverðri spilun á Rás 2 og komust öll í topp tíu vinsældarlista Rásar 2.
Í desember 2014 hófust upptökur í stúdíó Sýrland á 10 lögum sem eru í lokavinnslu og verða fljótlega verið gefin út en þar má finna lög eins og Hvert fór tíminn, Mannlegur búfénaður, Vesturfarar, Þjóðarskútan og fl. Tónleikarnir verða á þjóðlegum nótum með skemmtilegu ívafi af sögum, gríni og glensi.
Húsið opnar kl.18.30, léttar veitingar. Borðapantanir í síma 511-1904.