Hleð Viðburðir

Ástin, drekinn og Auður djúpúðga

,,Þykjast menn varla dæmi til vita að einn kvenmaður hafi komist í brott úr þvílíkum ófriði með jafnmiklu fé og föruneyti.” Þannig farast sögumanni Laxdælu orð um ferð Auðar djúpúðgu frá Skotlandi til Íslands í lok níundu aldar. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur hefur sent frá sér tvær skáldsögur um ævi landnámskonunnar og vinnur nú að þeirri þriðju og síðustu þar sem hún spinnur þráðinn út frá þessum þekktu orðum, ásamt heimildum um atburði í Skotlandi á sögutímanum.

Vilborg segir gestum Hannesarholts í máli og myndum frá sjálfri sér, skrifum sínum um Auði og einnig nýjustu bók sinni sem kom út í vor og ber titilinn Ástin, drekinn og dauðinn. Þar fjallar hún um vegferð sína og manns síns með sjúkdómnum sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og deilir með lesendum því sem sorgin hefur kennt henni: mikilvægi þess að lifa til fulls, í núinu, í sátt og viðtekt og vanda sig við að elska, lifa og deyja. Bókin hefur hlotið afar góðar viðtökur og einróma lof lesenda.

Boðið er uppá léttan kvöldverð á undan í veitingastofunum á 1.hæð, menningarplatta á 2.900 kr frá kl.18.30. Borðapantanir í síma 511-1904.

 

 

Upplýsingar

Dagsetn:
18/11/2015
Tími:
20:00
Verð:
kr.1000
Viðburður Category:
Tök Viðburður:
, , ,
Vefsíða:
http://midi.is/atburdir/1/9282/Kvoldstund_med_Vilborgu_Davidsdottur

Skipuleggjandi

Vilborg Davíðsdóttir

Staðsetning

Hljóðberg