This event has passed.
Tónleikar – fjórhent píanótónlist
10/09/2016 @ 16:00
| kr.2000Þóra Kristín Gunnarsdóttir og Anda Kryeziu flytja perlur úr heimi fjórhentra bókmennta. Á efnisskránni eru verk eftir Franz Scubert, Claude Debussy og Maurice Ravel.
Anda Kryeziu er frá Kosovo en hefur frá árinu 2011 stundað háskólanám í píanóleik og tónsmíðum í Sviss. Hún hefur unnið ýmsar keppnir í heimalandi sínu sem og á Ítalíu, og er styrkþegi B.O.G. og Atdta Foundation í Sviss. Ásamt því að njóta velgengni sem tónskáld kemur hún reglulega fram á tónleikum. Núverandi píanókennari hennar er Konstantin Lifschitz.
Þóra er Akureyringur en fluttist einnig til Sviss árið 2011 til að stunda tónlistarnám með Yvonne Lang sem aðalkennara. Þóra fékk styrk úr styrktarsjóði Birgis Einarsonar árið 2014
og frá KEA árið 2011. Auk námsins í Sviss sækir hún tíma til Katia Veekmans í Hollandi, og hefur tekið þátt á ýmsum Masterclass-námskeiðum m.a. í Sviss, Svíþjóð og Belgíu.