This event has passed.
Kvöldstund með Sigríði Snævarr
07/12/2016 @ 20:00
| kr.1500Kvöldstund með Sigríði Ásdísi Snævarr. Sigríður varð fyrst íslenskra kvenna til að vera skipuð sendiherra. Var það árið 1991 á miklum umbrotatímum. Hún hefur starfað víða um heim sem diplómat síðan 1978, hóf starfsferilinn í Sovétríkjunum og var síðast erlendis sem sendiherra í París. Hún er enn í utanríkisþjónustunni og vinnur með diplómötum framtíðarinnar.
Veitingastofur opna kl. 18 fyrir þá sem vilja gera sér dagamun og taka kvöldið snemma. Í boði er Jólaplatti Hannesarholts með hefðbundum jólaréttum en einnig spennandi Vegan jólaplatti. Verð 4.900 kr. Athugið að nauðsynlegt er að panta borð í síðasta lagi fyrir hádegi samdægurs á hannesarholt@hannesarholt.is eða í síma 511 1904.