Jólahugvekja Þráins – Sungið saman
11/12/2016 @ 15:00 - 16:00
| kr.1000Jólahugvekja Þráins
Í liðlega klukkustund ætlar Þráinn Árni Baldvinsson, tónlistarkennari og gítarleikari Skálmaldar, að stjórna jólahugvekju með söng, spili og sögum.
Stemmningin verður afslöppuð og allir velkomnir að syngja með og taka þátt í að skapa einstaka jólastemmningu.
Þráinn Árni starfar nú sem tónmenntakennari við Norðlingaskóla milli þess sem hann ferðast um heiminn með hljómsveit. Hann hefur leikið inn á fjölmargar hljómplötur hér heima og ásamt því að spila með mörgum af okkar þekktustu og bestu listamönnum hefur hann einnig leikið með hinum heimsþekkta Bruce Kulick (Kiss).
Aðgangur kr. 1000.-
Frítt fyrir börn.