Hleð Viðburðir

Birgitta Haukdal les úr bókunum sínum um Láru og Ljónsa og syngur fyrir gesti.

Kósýkvöld hjá Láru og Lára fer á skíði eru bækur númer 3 og 4 í Láruseríunni eftir Birgittu Haukdal. Í fyrra komu bækurnar Lára lærir að hjóla og Lára fer í flugvél. Bækurnar er fyrir börn á aldrinum 3-7 ára og aðalsöguhetjurnar eru Lára og bangsinn hennar Ljónsi. Á milli þeirra ríkir alveg sérstakt samband og Lára tekur Ljónsa með sér hvert sem hún fer. Lára er góð fyrirmynd fyrir börnin okkar og lendir í ævintýrum sem börn á hennar aldri upplifa.
Birgitta á sjálf börn á aldrinum 1 – 7 ára og leggur mikinn metnað í að myndskreytingarnar og söguþráðurinn heilli börnin og kenni þeim á hin raunverulegu ævintýri lífsins.

Aðgangur ókeypis.

Upplýsingar

Dagsetn:
18/12/2016
Tími:
14:00
Viðburður Category:

Skipuleggjandi

Birgitta Haukdal

Staðsetning

Hljóðberg
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map