Hleð Viðburðir

Elsku Drauma mín er ævisaga, skrifuð af skáldkonu, en Ósjálfrátt er skáldsaga, byggð á ævi skáldkonu. Báðar spretta þessar bækur þó úr sama jarðveginum, nánast úr sama kviðnum ef það er satt að barn sé upphaflega eggið úr ömmu sinni. Í báðum sögunum bregður Draumu leynt og ljóst fyrir en með ólíkum hætti.

Hver er munurinn á því að skrifa ævisögu og skáldsögu? Þær Vigdís Grímsdóttir og Auður Jónsdóttir ræða reynslu sína af því að fanga sömu bráðina í net ólíkra forma, þann 12. janúar í Hannesarholti. Ef þau eru þá svo ólík, eftir allt saman. Þriðja skáldkonan, Kristín Ómarsdóttir, ætlar að leiða umræðurnar og yfirheyra þær eftir bestu getu – vonandi með dyggri aðstoð áhorfenda.

Veitingastofur opna kl. 18.30 fyrir þá sem vilja gera sér dagamun og taka kvöldið snemma. Í boði er ljúffengt fiskmeti úr eldhúsi Hannesarholts.  Athugið að nauðsynlegt er að panta fyrir hádegi samdægurs á hannesarholt@hannesarholt.is eða í síma 511 1904.

Upplýsingar

Dagsetn:
12/01/2017
Tími:
20:00
Verð:
kr.1500
Viðburður Category:
Vefsíða:
https://midi.is/atburdir/1/9934/Bokmenntaspjall_%E2%80%93_Elsku_Drauma_min_og_Osjalfratt

Staðsetning

Hljóðberg