Hleð Viðburðir

Olivier Manoury tónlistar- og myndlistarmaður sem nú sýnir vatnslitamyndir í Hannesarholt verður í húsinu mill kl. 15 og 17 með bandóneon harmónikkuna sína, áður en hann hverfur af landi brott.

Litir vatns og jarðar – vatnslitamyndir eftir Olivier Manoury. Sýningin prýðir veggi Hannesarholts til 20. janúar.

„Ég er þeirrar skoðunar að efnistök og stíll eigi rætur sínar að rekja til eilífðartogstreitu hæfileika og takmarkana. Mín eigin myndverk eru einfaldlega tilraun til að reyna að fanga síbeytilegt ljós og andrými náttúrunnar sem og manngerðs umhverfis.“
Olivier Manoury (f. 1953 í Tulle í Frakklandi) ólst að mestu upp í París. Hann var alla tíð listhneigður og hóf myndlistarnám sem barn að aldri. Síðar las hann ensku og bókmenntir við Sorbonne háskóla og lauk þaðan meistaraprófi í nútímabókmenntum árið 1975. Samhliða háskólanámi var hann í listaháskóla Parísarborgar (Ecole National des Beaux Arts) þar sem hann lagði stund á málaralist hjá Gustave Singier og Jacgues Yankel, auk þess að læra höggmyndalist hjá Etienne Martin.

Drýgstan hluta ævi sinnar hefur Olivier þó starfað sem tónlistarmaður, enda er hann er vel þekktur sem bandóneonleikari í Frakklandi og víðar um heim. Hann hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir, leikhús og danssýningar, spilað inn á fjölda geisladiska, auk þess að leika á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu og Suður-Ameríku. Olivier leikur bæði tangó og jass en meðal þeirra hljómsveita sem hann hefur stofnað eru Tangoneon, Tempo Di Tango og Le Grand Tango. Síðasnefnda hljómsveitin er Íslendingum að góðu kunn, en hún er skipuð þekktum hljóðfæraleikurum úr íslensku tónlistarlífi.

Upplýsingar

Dagsetn:
07/01/2017
Tími:
15:00