2026-11-27T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Syngjum saman verður að þessu sinni í höndum Heimilisiðnaðarfélagsins sem verður með þjóðbúningakaffi í Hannesarholti. Rósa Jóhannesdóttir fiðlukennari og barnakórsstjórnandi stýrir söngstundinni og nýtur hún stuðnings dætra sinna Iðunnar Helgu og Grétu Petrínu. Sigurður Alfonsson leikur með á harmónikku.

Eins og venja er til fá börn frítt inn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 krónur inn.
Miða má kaupa fyrirfram á midi.is

Veitingahúsið er opið til kl.17.

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top