Tónleikar – Peter Máté og Eugen Prochác
22/11/2017 @ 20:00
| kr.2500Sjaldheyrður klassíker J.N.Hummel fyrir selló og píanó.
Eugen Prochác sellóleikari frá Bratislava og Peter Máté flytja öll þau verk fyrir selló og píanó sem austurríska tónskáldið Johann Nepomuk Hummel hefur samið.
Hummel (1778-1837) var nemandi Mozarts og vinur Beethovens og Schuberts og starfaði í Vínarborg, Stuttgart og Weimar. Hann var einn frægasti píanóleikari og tónskáld síns tíma en eftir komu nýrra strauma rómantíkurinnar hurfu verkin hans úr tónlistarsölum Evrópu. Síðustu áratugi hafa margir tónlistarmenn heimsins unnið við verðskuldaðri endurreisn tónverka þessa síðklassíska tónskálds.
Verkin þrjú á dagskrá eru Variazioni Monferrina, tilbrigði um ítalskan dans sem var mjög vinsæll á 19. öld, Potpourri sem er tónlistarsyrpa með frægum aríum eftir Mozart og Rossini og Sónata fyrir selló og píanó. Sónatan er ljúf snemmrómantískt tónverk með fallegum melodíum og skemmtilegum tækniþrautum fyrir flytjendur.
Eugen Prochác er einn þekktasti sellóleikari Slóvakíu og dósent við Tónlistarháskólann í Bratislava. Hann hefur komið fram í nær 40 löndum fjögurra heimsálfa, sem einleikari, stjórnandi og sellóleikari í ýmsum kammertónlistarhópum. Eugen hefur hljóðritað fyrir Naxos og haldið masterklassa víða um veröld. Hann hefur verið listrænn stjórnandi tónlistarhátíða í Slóvakíu, Tyrklandi, Sameinuðu arabísku furstdæmunum og hefur starfað saman við þekkta tónlistarmenn eins og Sofia Gubaidulina, Arto Noras, En Shao, Giovanni Sollima, Rick Wakeman, Steve Hackett, Miroslav Vitouš, Ken Hensley, Václav Hudeček.
Peter Máté er einnig fæddur í Slóvakíu en hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990. Hann hefur haldið marga einleikstónleika og tekið þátt í kammertónleikum víða á Íslandi sem erlendis. Peter er prófessor Listaháskóla Íslands og kennari við Menntaskólann í tónlist. Hann hefur kennt masterklassa við fjölda erlendra háskóla og einnig tekið að sér dómarastarf við píanókeppnir.
Peter og Eugen stunduðu báðir nám á sama tíma við Tónlistarakademíuna í Prag og eru nú að hittast í fyrsta skipti eftir 30 ár til þess að spila saman á tónleikunum.